Samtal um græna styrki

Samtal um græna styrki  

Þann 30. Nóvember næstkomandi á Egilsstöðum verður haldinn formlegur fundur og samtal um græna styrki á Austurlandi. Þar muna Rannís, Samband íslenskra sveitarfélaga, Austurbrú og Eygló standa fyrir fundinum.. 

Á fundinum verður fjallað um sóknartækifæri fyrir íslenska aðila í Evrópuáætlanir á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála, og þá þjónustu sem umsækjendum stendur til boða. Þá mun Austurbrú einnig deila reynslu sinni af Evrópuverkefnum. Fundurinn er opinn öllum en við bjóðum sérstaklega velkomin aðila sem eru að stíga sín fyrstu skref í sjóðasókn, hvort sem eru fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, félagasamtök, háskólar eða aðrir.

Dagskrá:

  • Almennt um Evrópustyrki og aðkomu Íslands að þeim
  • Horizon Europe – Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB​
  • LIFE – Umhverfis- og loftslagsáætlun ESB​
  • European City Facility – Styrkir til að útbúa fjárfestingaráætlanir fyrir sveitarfélög ​vegna orkuskipta
  • Austurbrú – Reynslan af Evrópuverkefnum og lærdómur
  • Samband íslenskra sveitarfélaga í Evrópuverkefnum – Ólíkar leiðir ​til samstarfs og þátttöku
  • Þjónusta Rannís og fyrstu skrefin í sjóðasókn ​

Nánari upplýsingar:

Mánudagur 30. nóvember kl. 14:00 -15:30

Hótel Hérað, Miðvangur 1-7, Egilsstaðir (einnig streymt á Teams)

Vinsamlegast skráið þátttöku: https://forms.office.com/e/5ZAyY0fnnC


Allar fréttir

#