Björt og kraftmikil framtíð
Eygló er samstarfsverkefni um eflingu orkuskipta, orkunýtni og hringrásarhagkerfis á Austurlandi.
Heitið Eygló vísar til öflugasta orkugjafans, sólarinnar, og til bjartrar og kraftmikillar framtíðar.
NánarEygló stuðlar að nýsköpun sem hraðar orkuskiptum, bætir orkunýtni og styrkir hringrásarhagkerfið.
Markmið Eyglóar er að minnka kolefnisspor Austurlands í samstarfi við einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir á svæðinu. Eygló mun kortleggja orku- og efnisstrauma á Austurlandi og stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda. Til að ná þessu yfirmarkmiði, verða sett á fót eftirfarandi verkefni sem stuðla að framförum í orkuskiptum, orkunýtni og hringrás.
Skrifað var undir samstarfssamning þess efnis í Fljótsdalsstöð milli Landsvirkjunar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Austurbrúar og sveitarfélaga á Austurlandi; Múlaþings, Fjarðabyggðar, Fljótdalshrepps og Vopna-fjarðarhrepps þann 3. febrúar 2023.
-
Orkuskipti
Eygló ætlar að beita sér fyrir minni notkun jarðefnaeldsneytis á Austurlandi í sjávarútvegi, samgöngum og iðnaði
-
Orkunýtni
Eygló mun draga út orkunotkun á Austurlandi með því að stuðla að uppbyggingu fjarvarmaveitna, t.d. með varmadælum, og aukinni nýtingu á glatvarma.
-
Hringrás
Eygló mun stuðla að endurnýtingu úrgangsstrauma og minnka þannig magn til urðunar frá Austurlandi.
Fréttir
Skoða allar fréttirTeymið
Stjórnarmenn
Kjartan Ingvarsson
Umhverfis, -orku og -loftslagsráðuneytið
Dagmar Ýr Stefánsdóttir
Austurbrú
Ríkarður S. Ríkarðsson
Landsvirkjun