Eygló leitar að verkefnastjóra

Stjórn Eyglóar leitar að verkefnastjóra til að sinna verkefnum sem snúa að uppbyggingu og þróun á sviði hringrásarhagkerfisins, orkuskipta og nýsköpunar. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir skilningi og þekkingu á hringrásarhagkerfinu, sérþekking á sviði orkuskipta og nýsköpunar er kostur. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Búseta á Austurlandi er skilyrði og mun starfsstöð taka mið af búsetu viðkomandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Virk þátttaka í öflun nýrra verkefna
  • Verkefnastjórn og eftirfylgni
  • Söfnun, greining og úrvinnsla gagna
  • Umsóknarskrif
  • Samskipti og samstarf við hagaðila
  • Teymisvinna með öðrum samstarfverkefnum, þ.e. Bláma, Eim og Orkídeu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á nýsköpunar-, frumkvöðla- og styrkjaumhverfi vegna þróunar- og rannsóknaverkefna
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og færni í að koma frá sér efni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Reynsla af verkefnastjórn er kostur
  • Góð færni í íslensku og ensku

Allar fréttir

#