Eygló leitar að framkvæmdastjóra.
06.10.2023Stjórn Eyglóar leitar að drífandi og jákvæðum leiðtoga til að leiða samstarfsverkefnið Eygló til ársloka 2026. Leitað er að framúrskarandi einstaklingi með brennandi áhuga á nýsköpunarverkefnum á sviði hringrásarhagkerfisins, orkuskipta og loftslagsmála. Starfið felst í umsjón með daglegum rekstri Eyglóar og ábyrgð á öflun nýrra verkefna og verkefnastjórn á alþjóðlegum nýsköpunar- og þróunarverkefnum. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Búseta á Austurlandi er skilyrði og mun starfsstöð taka mið af búsetu viðkomandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegum rekstri Eyglóar
- Stefnumótun og áætlanagerð
- Ábyrgð á öflun nýrra verkefna
- Verkefnastjórnun og eftirfylgni
- Samskipti og samstarf við hagaðila
- Koma fram fyrir hönd Eyglóar og kynna starfsemi verkefnisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistarapróf sem nýtist í starfi
- Haldbær reynsla og þekking af stjórnun, rekstri og áætlanagerð
- Leiðtogahæfni og drifkraftur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Reynsla innan stjórnsýslunnar er kostur
- Reynsla af þátttöku í Evrópuverkefnum er kostur
- Góð tungumálakunnátta
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 15. október nk.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi.