Fræðslufundur um varmadælur og styrki á Stöðvarfirði
05.05.2025Á mánudaginn 28. apríl stóð Eygló fyrir hagnýtum og líflegum fræðslufundi í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði undir yfirskriftinni „Hlýtt heimili – fræðsla um varmadælur og styrki“. Fundurinn var hluti af áframhaldandi verkefni okkar að styðja við orkuskipti og sjálfbæra þróun í heimabyggð.
Rut frá Parut ehf veitti yfirgripsmikla innsýn í það hvernig mismunandi tegundir varmadæla virka, hvaða lausnir henta best eftir húsnæði og hvernig hægt er að bæta orkunýtingu á köldum svæðum.
Axel frá Umhverfis- og orkustofnun bætti við gagnlegri og hnitmiðaðri kynningu á þeim styrkjum og hvötum sem standa heimilum til boða, ásamt ávinningi orkusparnaðar bæði fyrir einstaklinga og samfélagið í heild.
Fundurinn var vel sóttur og þátttakendur tóku virkan þátt í umræðum og spurningum – bæði í lok fundar og yfir kaffibolla á eftir. Við finnum að áhuginn er mikill og þörfin fyrir hagnýtar upplýsingar er sannarlega til staðar.
Fundurinn var tekinn upp og verður fljótlega aðgengilegur með enskum texta á heimasíðu Eyglóar og samfélagsmiðlum. Í kjölfarið verður einnig gefinn út stuttur upplýsingabæklingur með helstu punktum frá fundinum.
Við þökkum Sterkur Stöðvarfjörður kærlega fyrir stuðninginn og öllum fundargestum fyrir komuna og frábært samtal.