Fjárfestahátíð Norðanáttar 2024
21.02.2024Skógarafurðir ehf, Eygló og Austurbrú hafa undanfarið unnið að kynningarefni fyrir stækkun vinnslustöðvar fyrir umhverfisvænar íslenskar viðarafurðir. Markmiðið var að komast í gegn um val dómnefndar um þátttökurétt fyrir fjárfestahátíð Norðanáttar á Siglufirði í mars.
Nú hefur dómnefnd lokið störfum og Skógarafurðir ehf er eitt af átta frumkvöðlafyrirtækjum sem varð fyrir valinu.
Til hamingju Skógarafurðir !